saeja
Sæja
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


My space!
Þeir sem eru næst hjarta mínu
Alla systir
Birgitta Ýr
Dellan
Húlda mín
Ingibjörgin mín
Jóhanna Himinbjörg
Stefán mágur
Stjana elskan
Sjö fræknu
Thelma "litla"

Litlu Englarnir
Ásrún Adda og Þóra Kristín
Marín litla Halldóru og Jóa
Íris Þöll, Sólveigar og Hróa

Aðrar Dræsur!
Anna Friðrika
Anna Margrét í Malmö
Bobba, Erna o.fl.
Eyrún Ösp
Gulla
Hallbera
Heiða Pálrún
Hildigunnur
Hildigunna fyrrv. sambýliskona
Jóhanna Lilja
Katrín
Kristín Halla
Lára Bettý
Linda Sæberg
Pála
Ragnheiður
Rósa Björk
Rósa Gréta
Sibba og Alli í Danaveldi
Sigga Fanney
Sissú
Sólveig
Sólveig Ása
Unnur

Aðrir Delar!
Aui
Emmi
G-Unit
Heimir
Ísak Sigurjón
Jóhannes
Captein Jónas
Lárensíus
Þorgeir bravison

Hópbloggedíblogg
A-vaktin hin eina sanna
B-vaktin hin besta
Minn gamli unaðsbekkur
Þroskaþjálfabekkurinn minn
Útskriftarnemar 2004
Útskriftarnemar 2003
4ði A
4ði T
4ði U

Myndir úr lífi mínu
Ratleikurinn mikli
Árshátíðin
Köben
Júróvisionpertý
Janúarfagnaður
Jól og áramót
Afmæli Imbunnar

5 af 7 fræknu hittingur

Innflutningspertýið

Helgin okkar með Huldu

Menningarnótt

Nýnemadjamm-Úthlíð

Köbenferð-U2

Lokaball og partý í Reykjadal

Partý hjá Gylfa og Óvissuferð A-vaktar

Sæl vinkona

Matarboð hjá Möggu

Rejúníon

A-vaktar djammið hið fyrsta

Unaðshelgi okkar Ingibjargar

Gleðskapur í Borgarnesinu

Ég og Anna Margrét



Kveðjupartý Katrínar og Kletturinn

Áramótin

Spánn myndir
Fyrstu 3 vikurnar

Nýjar myndir

Flamenco og fl.

Granada

Madríd

Sevilla

Börnin og húsið

hit tracker
Tölfræði heimsókna

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Saturday, November 11, 2006
Flutt

Þar sem Blogdrive hefur undanfarna daga verið með stæla við mig og þá sem vilja skoða þessa síðu þá hef ég flutt mig um set.

Nýja heimili mitt

Endilega kíktu í heimsókn og ef þú ert með tengil á mig á síðunni þinni endilega breyttu honum.


Posted at 05:03 pm by saeja
Make a comment  

 
Thursday, November 09, 2006
Ég fæ hroll

Var að horfa á umfjöllun Kastljóssins um ummæli forystumanna Frjálslynda flokksins um innflytjendur. Í framhaldi af því var fólk spurt hvort það myndi kjósa flokk sem hefði það á stefnuskrá sinni að banna innflytjendur og flestir svöruðu já.

Já ég fæ hroll. Mér finnst það til háborinnar skammar að fara að banna útlendinga, það er bara ekki hægt. Ein rökin fyrir því hjá þessu fólki er að útlendingar séu til vandræða. Það er bara ekki rétt. Útlendingar eru ekkert til meiri vandræða en íslendingar. Það sem við þurfum að gera er að taka vel á móti fólkinu, fræða það og veita því þá þjónustu sem þau þurfa til að aðlagast samfélaginu sem best og sem fyrst. Ég er alveg sammála að útlendingar þurfi að læra íslensku og á íslenska ríkið að sjá til þess því ég tel að eitt helsta vandamálið sé að útlendingar hér á landi tala ekki málið og því einangrast þeir. Það er alveg ljóst að ef ég flytti til Spánar t.d. þá þyrfti ég að aðlagast þeim menningarheimi sem er þar við lýði og ég þyrfti að læra málið því annars get ég ætlast til þess að tekið sé á móti mér sem íbúa landsins og krafist þess að hljóta öll réttindi almenns íbúa. Mér finnst líka sjálfsagt að ætlast sé til þess að þeir sem flytji hingað mennti sig eða stundi vinnu svo þau verði ekki upp á ríkið komið.

En að segja að útlendingar séu til eintómra vandræða og geri ekkert gagn, það á bara ekki rétt á sér. Það er bláköld staðreynd að án þeirra væri mikill skortur á vinnuafli hér í láglaunastörfum svo dæmi sé nefnt.

Ég gæti haldið lengi áfram, ég er bara of hneyksluð og reið til að segja eitthvað af nógu miklu viti.


Posted at 07:45 pm by saeja
Comments (4)  

 
Tuesday, November 07, 2006
Jóli, jólin, jólin koma senn

Þetta er ekki eðlilegt, ég er komin í glimrandi jólaskap og það í byrjun nóvember. Hefur aldrei gerst svo snemma hjá mér. Kannski blessaðar búðirnar hjálpi eitthvað til enda farnar að selja jóladótið grimmt og meira að segja spila jólalög sem er reyndar bannað á mínu heimili fyrir 1. des.

Mér hefur aldrei liðið svona. Öll lög sem ég heyri í útvarpinu finnast mér vera jólalög, ég komst í hrikalegt stuð þegar ég pakkaði inn einni gjöf á sunnudag, kveiki sífellt á kertum því þau eru svo jólaleg, er farin að plana hvar ég set jólaskrautið mitt upp, keypti mandarínur um daginn því þær koma með jólunum og sit núna með malt og appelsín og borða súkkulaðibitakökur.

Andlegt ástand mitt versnar með hverjum deginum og enn eru 47 dagar til jóla.....ég verð orðin geðveik og löngu komin yfir jólaspenningin þegar þau loksins koma. Kannski bara búin að halda mín eigin FOR-jól.


Posted at 10:47 pm by saeja
Comments (1)  

 
Sunday, November 05, 2006
Pjúff

Ég er víst löngu komin heim frá Danmörku sem var sannarlega Dejlig. Hafði það afskaplega gott í faðmi fjölskyldunnar. Við nýttum tímann að sjálfsögðu vel, versluðum, heimsóttum ættingja víðsvegar á Jótlandi, fórum í Legoland, borðuðum. drukkum og fórum í skógarferð svo eitthvað sé nefnt. Veit ekki alveg hvernig LoVÍSU vinkonu líður eftir ferðina en ég hlýt að geta hjúkrað henni um næstu mánaðmót.

Hér erum við mæðgurnar að dreypa á fyrsta bjórnum í Leifstöð, svo virðist sem litli bróðir hafi litið okkur hornauga við það tækifæri.

Við systkinin í vélinni á leiðinni út.

Krakkarnir komnir í Lególand.

Eftir að ég kom heim hefur líf mitt alls ekki verið eintóm rólegheit. Byrjaði að vinna á leikskólanum á föstudaginn og líst alveg svakalega vel á. Lítil börn eru algjörir gullmolar. Hef líka fengið nóg að gera á Broadway, var einmitt að vinna í gær og er að vinna bæði fös og lau um næstu helgi.

Finnst ekki leiðilegt að vinna þegar ég fæ tækifæri til að sjá þau show sem í gangi eru og það á kaupi. Í gær sá ég Le Sing og á föstudaginn er frumsýningin á Tinu Turner sýningunni, ekki leiðilegt það. Skil samt ekki fólk sem vinnur við að þjóna í stórum veislum hverja einustu helgi, ég er nefnilega alveg búin í líkamanum eftir eitt kvöld, finn allstaðar til.

Fyrir þá sem hafa ekki fylgst með þá er komin nóvember og það þýðir aðeins eitt, allt verður brjálað í skólanum. Á að skila allavega 6 verkefnum í lok mánaðarins.

Ég mun því ekki eiga mér mikið líf næstu vikurnarTongue


Posted at 01:36 pm by saeja
Comments (2)  

 
Wednesday, October 25, 2006
Danmark her kommer jeg!

Ætla að dvelja næstu daga í þessu unaðslandi, Danmörku, nánar til tekið í Árósum. Flýg utan um kaffileytið á morgun og kem til baka á þriðjudaginn.

Efast ekki um að ég eigi eftir að hafa það notalegt enda hefur fjölskyldan við Rydevænget verið sveitt síðustu vikurnar við að undirbúa komu okkar.

Hlakka óseigjanlega mikið til að hitta þau öll.


Posted at 09:12 pm by saeja
Comments (4)  

 
Friday, October 20, 2006
Ég veit ekki!

Nei ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það þegar útvarpsmenn spila lög með sjálfum sér. Finnst eitthvað kjánalegt við það. Hugsa allavega að ég myndi ekki gera það.

,,Kæru hlustendur, næsta lag sem ég ætla að spila er nýtt lag með sjálfri mér. Þótt ég segi sjálf frá þá er það fanta gott".....

Ég fékk vinnuna sem ég sótti um í gær. Greinilega skortur á starfsfólki því ekki voru þau lengi að ráða mig. Held reyndar að hæfileikar mínir hafi ekki skemmt fyrir. Ég byrja semsagt að vinna á leikskólanum Sólborg í Öskjuhlíð 3. nóv. Vel mér kannski ekki launahæsta starfið en hef alltaf öfundað Margréti fyrir föndurhæfileika sína og vona að eftir nokkrar vikur í starfi verði ég mega góður föndrari.

Í gær var ég á leiðinni í þessa búð

 

Fór ásamt móður minni og guð minn góður hvað stækkunin er mikil. Vorum í 1 1/2 tíma inni og skoðuðum ekki nándar nærri allt. Maður fer engan skreppitúr í Ikea núna. Ég er allavega voða ánægð með nýju búðina, er reyndar alltaf ánægð með Ikea, elska hana.


Posted at 04:52 pm by saeja
Comments (4)  

 
Thursday, October 19, 2006
Hæ fadderí fadderallallallall

Komin tími á smá fréttir af kellu, ekki að það sé neitt markvert í gangi hér á bæ.

Síðustu dagar hafa, ótrúlegt en satt, farið í mikinn lærdóm og er ég alveg búin að fá nóg í bili. Þýðir samt ekki að taka sér of langa pásu þar sem fleiri verkefni bíða mín.

Um síðustu helgi skellti ég mér í sveitina góðu. Hafði helgina til að gera heimapróf og hvar er betra að gera það en heima hjá mömmu gömlu. Svo fór að ég kláraði það að sjálfsögðu með stæl, eða það vona ég að minnsta kosti.

Var í öðru prófi í dag og vona sannarlega að ég hafi gert eitthvað rétt þar, þá verður allavega einu færri próf í desember.

Á morgun er svo að öllum líkindu vinna upp í Reykjadal í eins og eitt stykki sólarhring og ætla svo að skella mér strax að henni lokinni á Broadway og þjóna nokkrum þar. Ekki amalegt að eyða helginni í vinnu, er komin með fráhvarfseinkenni hreinlega.

Var reyndarað sækja um aðra vinnu rétt áðan, á leikskóla hér í bæ og fæ að vita von bráðar hvort mér hlotnist hún. Það væri ekki verra.

Nú eftir akkúrat viku verð ég í háloftunum á leið til Danaveldis í allan unaðinn sem það hefur upp á að bjóða. Yndisleg helgi án efa sem ég mun eyða þar í faðmi fjöllunnar.

Síðast en ekki síst þá er ég búin að losna við helstu hömlurnar sem voru á kjaftinum á mér. Já ég legg ekki meira á ykkur. Ég er farin að geta talað og borðað smá líka. Brosti allan hringinn þegar ég kom frá tannsa í gær, hef þráð það í 4 vikur að fá að borða eitthvað annað en smoothie og súpur og stundin rann upp í gær. Unaðurinn hinn eini.

Nú ætla ég hins vegar að skella mér í hið nýja Ikea og athuga hvernig mér líkar. Er þá búin með 1/10 af þeim heimsóknum sem mér, sem íslending, ber að fara þangað þetta árið.


Posted at 04:14 pm by saeja
Comments (2)  

 
Thursday, October 12, 2006
6 til 7

Hæ ég heiti Særún og ég er 6 til 7isti.

Fjúff þá hef ég loksins opnað mig um þessa fíkn mína. Ég er semsagt gríðarlegt 6 til 7 fan, semsagt aðdáandi þáttanna og velti oft fyrir mér hvort einhver í heiminum elski þættina eins mikið og ég. Ok elska er kannski aðeins of sterkt til orða tekið en mér líkar þeir vel.

Efast um að nokkrar tvær manneskjur nái eins góðu connection og ég og Felix Bergs. Við skiljum hvort annað, eða ég skil hann allavega. Við nefnilega hlæjum saman og grátum saman (úr gleði nota bene) eins ótrúlega og það nú hljómar. Þó maðurinn sé samkynhneigður þá er ég kolfallinn fyrir honum.

Ég veit eiginlega ekki hvað það er sem gerir þáttinn svona skemmtilegan. Líklega eru það bara Felix og Guðrún, þau passa nefnilega svo skemmtilega saman, eru eitthvað svo létt en þó alvarleg þegar þess er þörf. Merkilegt hvað þau hlæja mikið og eiginlega ekki annað hægt en að hlæja með þeim. Efnistök þáttarins eru líka góð, allt milli himins og jarðar og pólítíkin verður meira að segja þolanleg. Hugsa samt að það sem er best sé allur maturinn sem er eldaður hjá þeim, alltaf fljótlegur og svo hrikalega girnilegur.

Þátturinn í dag var t.d. frábær. Jón Ólafs og Hildur Vala komu í þáttinn og fengu að smakka á því sem hafði verið eldað. Aldrei í þáttunum hef ég séð eins gráðugan mann og Jón, það var stórkostlegt. Hann borðaði á ljóshraða og þegar hann hafði klárað af diskinum náði hann sér í köku sem var á borðinu og byrjaði að borða hana. Greip svo eina sneið í nesti. Yndislegt.

Er hætt að lofsama þættina vil ekki að fólk fái algjört ógeð en vitiði til prófið bara að horfa.


Posted at 07:44 pm by saeja
Comments (5)  

 
Sunday, October 08, 2006
Háir hælar!

Elskulegur nágranni minn hér fyrir ofan hefur verið að gera mig nett brjálaða undanfarna daga. Blessuð manneskjan labbar fram og tilbaka í einhverju maníukasti, að því er virðist, og ekki er hún á sokkaleistunum, ó nei hún er á hælaskóm einhversskonar sem heyrist svona hrikalega í. Ekki nóg með að hún sé að labba um íbúðina heldur virðist hún líka alltaf vera að setjast og standa upp úr einhverjum stól því það heyrist öðru hverju (ansi oft) hljóð eins og stóll sé dregin eftir gólfi. Ég var orðin ansi vön þessum hljóðum í gær en mér var allri lokið þegar ég rumskaði í nótt, kl: 5:40 nánar tiltekið, og ennþá er hún að ganga um gólfAngry Myndi alveg skilja þetta ef það væri lítið barn á heimilinu sem þyrfti að róa öðru hverju en svo er ekki.

Manneskjan er bara eitthvað kreisíííí!!!!

 


Posted at 12:25 pm by saeja
Comments (8)  

 
Thursday, October 05, 2006
Take That

Sagan segir að þessir myndarlegu menn séu staddir á landinu við tökur á nýju myndbandi. Spurning hvort maður ætti ekki að skella sér að Reykjanesvita og reyna að berja goðin augum eða bara láta sjá sig úti á lífinu um helgina því þar verða þeir víst líka. Veit ekki alveg. Æsingur minn yfir þessum karlmönnum hefur, furðulegt en satt, minnkað verulega með árunum. Þótt ég myndi eflaust kikna í hnjánum ef ég mætti þeim á götu.

Ætli þeir séu Back for good í þetta sinn?


Posted at 12:58 pm by saeja
Comments (4)  

Next Page