
Elskulegur nágranni minn hér fyrir ofan hefur verið að gera mig nett brjálaða undanfarna daga. Blessuð manneskjan labbar fram og tilbaka í einhverju maníukasti, að því er virðist, og ekki er hún á sokkaleistunum, ó nei hún er á hælaskóm einhversskonar sem heyrist svona hrikalega í. Ekki nóg með að hún sé að labba um íbúðina heldur virðist hún líka alltaf vera að setjast og standa upp úr einhverjum stól því það heyrist öðru hverju (ansi oft) hljóð eins og stóll sé dregin eftir gólfi. Ég var orðin ansi vön þessum hljóðum í gær en mér var allri lokið þegar ég rumskaði í nótt, kl: 5:40 nánar tiltekið, og ennþá er hún að ganga um gólf
Myndi alveg skilja þetta ef það væri lítið barn á heimilinu sem þyrfti að róa öðru hverju en svo er ekki.
Manneskjan er bara eitthvað kreisíííí!!!!
Posted at 12:25 pm by
saeja
 |  |  |
Sæja October 11, 2006 06:36 PM PDT
hahah nei blessunin hún Vilborg eða var það Úlli sem var í stígvélunum, að því komumst við aldrei.
Annars er ég viss um að gellan hafi hakkað sig inn á tölvuna hjá mér því þessi færsla birtist bara endrum og eins, hún er að hefna sín. Reyndar hefur hún eiginlega ekkert trampað um síðustu daga. Líklega orðin þreytt í fótunum greyið. |
 |

 |  |  |
Audur October 11, 2006 12:01 PM PDT
hun getur ekki verid neitt a vid... VILBORGU i pretty woman stigvelunum sinum einum fata a kvoldin !!! |
 |

 |  |  |
Sibba danska October 10, 2006 04:09 PM PDT
Byrjaðu bara að nota kústinn og banka í loftið..virkar í teiknimyndunum! |
 |

 |  |  |
Sæja October 9, 2006 09:01 PM PDT
Og það eru að verða þrjár vikur Helena. Það er skömm að þessu! |
 |

 |  |  |
Helena October 9, 2006 02:58 PM PDT
Jesús minn, farðu upp og lemdu hana! Sakna þín annars ástin, verð að fara að kíkja í heimsókn, hef ekki einu sinni séð þig eftir aðgerðina! Skandall! |
 |

 |  |  |
Alla October 9, 2006 12:25 AM PDT
Særún það er erfitt að vera í skóla!;) |
 |

 |  |  |
hulda October 8, 2006 08:32 PM PDT
Ég er í business skóla þannig að láttu mig þekkja "klikk klikk" hljóðið af háhæluðum skóm...úff úff. I would go mad ef ég myndi vakna við þetta. Góða kvartaðu ef þetta heldur áfram.
|
 |

 |  |  |
johanna October 8, 2006 03:41 PM PDT
hún er pottþétt svona gella sem ryksugar og gerir allt á hælunum. Ég vaknaði hins vegar í nótt við BOTEN ANNA í botni hjá nágrönnum mínum....púúff. Neighbours |
 |