saeja
Sæja
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


My space!
Þeir sem eru næst hjarta mínu
Alla systir
Birgitta Ýr
Dellan
Húlda mín
Ingibjörgin mín
Jóhanna Himinbjörg
Stefán mágur
Stjana elskan
Sjö fræknu
Thelma "litla"

Litlu Englarnir
Ásrún Adda og Þóra Kristín
Marín litla Halldóru og Jóa
Íris Þöll, Sólveigar og Hróa

Aðrar Dræsur!
Anna Friðrika
Anna Margrét í Malmö
Bobba, Erna o.fl.
Eyrún Ösp
Gulla
Hallbera
Heiða Pálrún
Hildigunnur
Hildigunna fyrrv. sambýliskona
Jóhanna Lilja
Katrín
Kristín Halla
Lára Bettý
Linda Sæberg
Pála
Ragnheiður
Rósa Björk
Rósa Gréta
Sibba og Alli í Danaveldi
Sigga Fanney
Sissú
Sólveig
Sólveig Ása
Unnur

Aðrir Delar!
Aui
Emmi
G-Unit
Heimir
Ísak Sigurjón
Jóhannes
Captein Jónas
Lárensíus
Þorgeir bravison

Hópbloggedíblogg
A-vaktin hin eina sanna
B-vaktin hin besta
Minn gamli unaðsbekkur
Þroskaþjálfabekkurinn minn
Útskriftarnemar 2004
Útskriftarnemar 2003
4ði A
4ði T
4ði U

Myndir úr lífi mínu
Ratleikurinn mikli
Árshátíðin
Köben
Júróvisionpertý
Janúarfagnaður
Jól og áramót
Afmæli Imbunnar

5 af 7 fræknu hittingur

Innflutningspertýið

Helgin okkar með Huldu

Menningarnótt

Nýnemadjamm-Úthlíð

Köbenferð-U2

Lokaball og partý í Reykjadal

Partý hjá Gylfa og Óvissuferð A-vaktar

Sæl vinkona

Matarboð hjá Möggu

Rejúníon

A-vaktar djammið hið fyrsta

Unaðshelgi okkar Ingibjargar

Gleðskapur í Borgarnesinu

Ég og Anna Margrét



Kveðjupartý Katrínar og Kletturinn

Áramótin

Spánn myndir
Fyrstu 3 vikurnar

Nýjar myndir

Flamenco og fl.

Granada

Madríd

Sevilla

Börnin og húsið

hit tracker
Tölfræði heimsókna

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Saturday, September 30, 2006
Hið dularfulla dósahvarf

Hér í Bólstaðarhlíðinni gerðist ansi dularfullur atburður um daginn, jahh allt að því glæpsamlegur.

Þannig er nefnilega mál með vexti að eftir eitt partý hérna hjá mér hafði safnast upp ansi gott magn af dósum og flöskum. Þar sem ég er ekki með mikið geymslupláss í íbúðinni vissi ég ekkert hvað ég ætti að gera við dósapokann og brá því á það ráð að geyma pokann á svölunum í smá tíma þangað til ég fyndi betri stað. Það vildi nú ekki betur til en svo að nú er pokinn horfinnShocked 

Ég sakna nú pokans ekkert sérstaklega og vona að hinn nýji eigandi njóti góðs af. Vonandi hefur þetta verið einhver heimilisleysinginn sem hefur séð sér leik á borði og á nú fyrir eins og einni pylsu og kók.

Verst þykir mér að einhver hafi verið að sniglast alveg upp við svaladyrnar mínar. Þar er fólk nefnilega komið ansi nálægt mínu persónulega svæði.

Kannski ég girði svalarsvæðið mitt bara af...


Posted at 05:14 pm by saeja
Comments (5)  

 
Wednesday, September 27, 2006
Skítur

 

Dreymdi ansi mikið af honum þessum í nótt.

Eins gott að draumaráðningabækur segi satt og ég eigi því von á fullt af peningum fljótlega því maður á aldrei nóg af það mikið er víst.

Samt svolítið furðulegt að hafa dreymt svona mikinn skít þar sem hann á að vera fyrir peningum og ég var einmitt að hugsa ótrúlega mikið um peninga rétt áður en ég fór að sofa. Kannski dreymdi mig hann bara þess vegna en ég vona svo sannarlega ekki.

SHOW ME THE MONEY!!!!


Posted at 08:31 pm by saeja
Comments (5)  

 
Monday, September 25, 2006
Matseðill dagsins

Eins og vel upplýstir lesendur vita þá er kjafturinn á mér reyrður saman þessa dagana. Einstaklega skemmtilegt. Sérstaklega það að ég get aðeins nærst á fljótandi fæði svona fyrst um sinn. Þar sem ég er ekkert sérstaklega hugmyndarík í þessum efnum þá lifi ég á einstaklega einhæfu fæði.

Svona til gamans langar mig að sýna hvernig hefðbundin matseðill lítur út hjá mér.

Morgunmatur: AB-drykkjarmjólk, Þykkmjólk eða Barnamatur, allt saman þynnt á einn eða annan hátt. Glas af sveskjusafa.

Hádegismatur: Build Up með súkkulaðibragði og einhverskonar ávaxtasafi.

Kaffi: Grænt orkute og kannski eins og eitt glas af einhverjum góðum safa.

Kvöldmatur: Einhver unaðsbollasúpa. Á ansi mikið úrval svo ég get breytt reglulega til. Einhverskonar orkudrykkur t.d. Magic.

Kvöldkaffi: Bara eitthvað að drekka, það sem mig langar í þá stundina.

Einkar áhugavert ekki satt. Þar sem þetta er ekkert voða spennandi fæði þá eru uppástungur vel þegnar. Gæti reyndar verið að ég geti farið að borða maukað fæði seinna í vikunni. Þá verður úrvalið aðeins meira.

Annars þrauka ég ágætlega. Hef allavega eitthvað til að hlakka til þ.e. að losna úr þessari prísund og líka það að á svipuðum tíma og þessu lýkur öllu saman þá er ég að fara til Danaveldis. Foreldrar mínir ástkærir ætla að bjóða okkur systkinunum í heimsókn til elskulegrar stóru systur og fjölskyldu hennar í Árósum. Ekki nema rétt rúmar 5 vikur þangað til ég fæ að knúsa þessar elskur


Posted at 02:17 pm by saeja
Comments (5)  

 
Thursday, September 21, 2006
Lítill og sætur naggrís

Jæja ég er komin heim eftir eins og hálfs sólarhrings dvöl á spítalanum. Elsku mamma sótti mig í gærkvöldi og brunaði með mig heim í sveitina með smá viðkomu í verslun til að kaupa ógrynni af barnamat, bollasúpum, söfum, orkudrykkjum og lyfjum. Á þessu mun ég semsagt lifa næstu fjórar vikurnar allavega.

Aðgerðin gekk bara mjög vel (eða það sagði læknirinn) og var ég komin á ról á undraverðum tíma, enda engin aumingji hér á ferð. Lá við að hjúkkurnar vildu halda mér lengur svo þær fengju að halda áfram að vekja mig á nóttunni til að sprauta í mig sterum og allskonar viðbjóði. Kannski ég verði bara massaðri eftir þessa veru mína þarna.

En mér líður allavega vel þrátt fyrir að vera allsvakalega reyrð saman í kjaftinum og andlitið smá bólgið og dofið en þetta venst allt. Býst við að koma suður á sunnudag enda þýðir ekkert að missa meir úr skólanum.


Posted at 04:16 pm by saeja
Comments (3)  

 
Friday, September 15, 2006
Ótrúlegt

1. Í New York City eru 11 bókstafir

2. Í Afghanistan eru 11 bókstafir

3. Í nafni Ramsin Yuseb (Hryðjuverkamaðurinn sem hótaði að eyðileggja Twin Tower árið 1993) eru 11 bókstafir.

4. Nafnið George W Bush er 11 bókstafir

Þetta gæti allt verið hrein tilviljun, en nú verður þetta áhugavert:

1. New York er 11. fylkið

2. Í flugi 11 voru 92 farþegar (9 + 2 = 11)

3. Í flugi númer 77 sem einnig flaug á tvíburaturnana voru 65 farþegar (6 + 5 11)

4.
Árasinn átti sér stað 11. september, sem er einnig þekkt sem 9/11 (9 + 1 + 1 =11)

5. Dagsetningin er eins og neyðarnúmerið í Bandaríkjunum 911 (9 + 1 + 1 = 11)

Ennþá hreinar tilviljanir?? Haltu lestrinum áfram.....

1. Heildarfjöldi fórnarlambanna sem voru í flugvélunum sem notaðar voru í árásunum var 254 (2 + 5 + 4 = 11)

2. 11. september er 254. dagurinn á árinu (2 + 5 + 4 = 11)

3. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 3.11.2004 (3 + 1 + 1 + 2 + 0 + 0 + 4 = 11)

4. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 911 dögum eftir árásina á Twin Towers.

... og nú kemur það sem er ennþá merkilegra:

Á eftir fána Bandaríkjanna (Stars and stripes) þá er Örninn þekktasta merki landsins

* Í eftirfarandi versi úr Kóraninum, hinni helgu ritningu Íslam, stendur:

"For it is written that a son of Arabia would awaken a fearsome Eagle.

The wrath of the Eagle would be felt throughout the lands of Allah and

while some of the people trembled in despair still more rejoiced:

For the wrath of the Eagle cleansed the lands of Allah and there was peace."

Þetta er vers númer 9.11 í Kóraninum.

Heldur þú ennþá að um hreinar tilviljanir sé að ræða? Prófaður þá eftirfarandi:

* Farðu í Microsoft Word og gerðu þetta:

1. Skrifaðu með hástöfum: Q33 NY. Flugnúmerið á fyrstu vélinni sem var flogið á tvíburaturnana.

2. Litaðu Q33 NY

3. Breyttu stafastærðinni í 48

4. Breyttu leturgerðinni í WINGDINGS (eða WINGDINGS 1)


Posted at 09:14 pm by saeja
Comments (5)  

 
Wednesday, September 13, 2006
Þar kom að því

Jæja læt loksins heyra í mér. Ég er sumsé löngu komin heim frá Búlgaríu, jahh eða fyrir rúmri viku og hversdagsleikinn strax tekin við. Ég hreinlega hef ekki haft tíma til að skrifa ferðasöguna hér. Svo var ég bara að fá netið heim rétt í þessu og hef eiginlega verið hálf fötluð svona netlaus. Hrikalegt hvað maður er háður þessum andskota. Hefði kannski verið sniðugt að sleppa því bara þar sem ég hef farið strax að læra eftir skóla síðustu dagana í stað þess að hanga á netinu.

Búlgó var æði og tæki mig allt of langan tíma að segja frá þessum 2 vikum hér. Svo ég stikla bara á stóru.

  • Hefði ekki getað fengið betri ferðafélaga. Stelpurnar stóðu undir öllum mínum væntingum.
  • Hótelið var frábært þrátt fyrir að vera það ódýrasta sem í boði var. Einstaklega heimilislegt og góður sundlaugargarður þar sem við gátum alltaf fengið sólbekki og höfðum sundlaugina yfirleitt út af fyrir okkur. Reyndar var það svo að þegar við fórum ofan í þá fóru allir aðrir uppúr.
  • Fórum út að borða held ég öll kvöldin og fengum nánast alltaf mjög góðan mat, ég var allavega mjög heppin. 2 veitingastaðir voru í uppáhaldi hjá okkur. Mexíkanski staðurinn Mamacitas og ítalski staðurinn Felice (þar sem mér tókst að brjóta bekkinn sem ég sat á með góðri hjálp, spurning um að fara að létta sig).
  • Sóluðum okkur mikið en þess á milli skoðuðum við Sunny Beach og Gamla Nessebar en þar var sérstaklega gaman að koma.
  • Lentum í þeirri mestu rigningu, þrumum og eldingum sem ég hef nokkru sinni séð, urðum rennandi á smá stund.
  • Fórum í sundleikjagarð og fengum adrenalínkikk sem ætti að endast til jóla. Harkaði mér í svaðalegustu brautina 4 sinnum svo hægt væri að ná ferðinni á myndband.
  • Fórum líka í siglingu, í roki og rigningu og hefðum allt eins getað verið heima á Fróni. Eins og sannir Íslendingar sem við erum stukkum við í sjóinn og ótrúlegt en satt þá var hann heitari en loftið.
  • Skruppum nokkur skipti á djammið. Eitt varð svaðalegra en hin sökum hins hrikalega hættulega kokteils Long Island Ice Tea. Í guðanna bænum farið varlega i hann. Það kvöld skall ein afturábak í gólfið í trylltum dansi, önnur dansaði uppá barborði, 3 kysstu sama blámanninn, ein kyssti barþjón, bolurinn var skorinn utan af einni, sú hina sama missti einhverra hluta vegna brjóstahaldara sinn í hendur barþjóns, einni var svo til hent út af skemmtistað, ein hvarf á ströndina með ungum blámanni, 2 fóru í heimsókn á busahótelið þeim til mikillar skemmtunar og margt fleira sem ég hreinlega man ekki og er kannski ekki prenthæft.
  • Sumar lentu verr í moskítóbitum en hinar.
  • Við versluðum eitthvað aðeins enda verðlag í Búlgaríu fáránlega lágt.
  • Anna og Jóhanna skelltu sér í teygjustökk seint að kveldi, ferðin hjá annarri fór mun verr en hjá hinni, say no more. Ég, Anna, Magga og Habba fórum í fallhlíf sem dregin er af bát og flugum notalega um loftin blá.
  • Síðast en ekki síst. Tvær ungar stúlkur þær Thelma og Telma komu okkur hrikalega á óvart og mættu algjörlega surprise seinni vikuna. Jesús og guð hef aldrei upplifað annað eins og þegar þær mættu. Öskur, hlátur og grátur í 8 stelpum á sama tíma.

Jæja ég hef talið eitthvað hérna upp ef einhver vill frekari sögur þá er um að gera að hafa samband eða kíkja í heimsókn, alltaf heitt á könnunni í fínu íbúðinni minni.

Það var svoldið erfitt að koma aftur heim í kuldann og svo ekki sé minnst á skólann....óóó. Spurning um að fara að setja í 5. gírinn þar. Tíminn líður alltof hratt næstum mánuður búinn og alveg að koma próf.

Kannski ég fari að líta í bækur eða kannski bara horfa á BeverlyTongue

Hér eru nokkrar myndir frá Búlgó:

Magga, Anna, Habba og Sigga að bíða eftir vélinni.

Byrjaðar að worka tanið!

Ég og Eiður Unaður Estelios í lauginni

Leynigestirnir nýmættir

Ég og Anna að svífa um loftin blá

Mishressar gellur að bíða eftir rútunni heim


Posted at 05:35 pm by saeja
Comments (3)  

 
Monday, August 21, 2006
Búlgaría!

Þarf að segja meir. Eftir ekki nema sólarhring verð ég æsispennt útá flugvelli að bíða eftir kallinu í vélina. Ahhh. Fréttir herma að hitinn í Búlgó sé yfirleitt 38-40° yfir daginn þessa dagana. Ekki amalegt það. Svitna líklega eins og svín og vonast því eftir að koma nokkrum kílóum léttari heim eftir mikið vökvatapTongue

Annars hef ég verið alltof busy undanfarna daga við að skemmta mér, slæpast og flytja. Hef því ekkert skrifað hér, önnur ástæða sem er kannski mesti þátturinn í því er að ég er netlaus. Nenni ekki að redda því fyrr en ég kem heim.

Komin tími til að pakka svo allt verði klárt á morgun.

Bið því bara að heilsa og vona að allir hafi það gott næstu tvær vikurnar. Ég efast ekki um að ég á eftir að hafa það superb.


Posted at 05:03 pm by saeja
Comments (4)  

 
Tuesday, August 15, 2006
Jahh so

Hef komist að því síðustu daga að mér finnst ekki gaman að flytja og sérstaklega ekki þegar maður getur ekki flutt allt draslið sitt í einni ferð og komið sér svo almennilega fyrir í einum rikk.

Þar sem mig vantar enn sófa, sjónvarp og ísskáp þá nennti ég hreinlega ekki að vera í nýju fínu íbúðinni minni og flúði í sveitina. Hér er reyndar engin þar sem öll mín fjölskylda hefur flúið land en ég hef það engu að síður gott, ein með sjálfri mér.

Þarf samt að fara aftur í höfuðborgina á morgun til að klára ýmsa hluti áður en ég held í sólina sem verður eftir ekki nema viku vúhúúúúúú. Þarf líklega að pakka uppúr töskunum svo ég geti pakkað aftur ofan í þær. Í þetta sinn einungis sumarfötumShades

Má heldur ekki missa af Rockstar kvöldi með stelpunum mínum. Rockstar tók nefnilega við af ANTM. Erum reyndar í mikilli tilvistarkreppu þessa dagana þar sem við missum af 2 Rockstar þáttum á meðan við erum úti og ekki nóg með það þá byrjar ANTM þegar við erum úti. Hvað skal gera? Kannski að Búlgarsk sjónvarp geti stytt okkur stundirnar í staðin.....æ ég veit það ekki.

 


Posted at 07:25 pm by saeja
Comments (4)  

 
Sunday, August 06, 2006
Æ æ æææ

Mikið var ég ánægð að sjá þessa mynd.

Fegurðardrottningar svitna víst líka eins og annað fólk.

Kannski ekki svo sniðugt samt að vera í ljósum kjól þegar maður á við svona vandamál að stríða.

Svona til gamans þá er sú óheppna Miss Brazil Mundo og er hún þarna ásamt UB okkar.


Posted at 11:42 pm by saeja
Comments (4)  

 
Friday, August 04, 2006
Life goes on

Lífið heldur svo sannarlega áfram og á allt of miklum hraða ef eitthvað er.

Aðeins 2 venjulegar vaktir eftir í vinnunni, á þriðjudag og miðvikudag. Þarf reyndar að mæta líka á föstudag en þá á að þrífa og svo á laugardag á lokaball og lokapartý starfsmanna sem ég ætla mér ekki að missa af. Ef stuðið verður eins mikið og í fyrra þá verður þetta svaðalegt.

Ætla að vera skynsöm þessa verslunarmannahelgina og vera bara heima í sveitinni. Er að fara að passa skæruliðana frænkur mínar á morgun og hinn. Ekki seinna vænna en að eyða smá tíma með þeim áður en þær flytja til Danmerkur á miðvikudaginn næsta. Annars býst ég við því að hitta þær næst í nóvember því elsku mamma mín ætlar líklega að bjóða mér til Danmerkur þá. Ekki amalegt.

Ég fæ íbúðina í Bólstaðarhlíð afhenta á föstudaginn svo nú þarf ég bara að fara að pakka. Ágætt að geta verið flutt inn og búin að koma mér fyrir áður en ég fer til Búlgó sem er eftir aðeins 18 daga. Fjúff hvað tíminn er fljótur að líða.

Annars hefur ekki verið minna að gera síðustu daga. Vinna og skemmtun er það eina sem ég geri. Lét mig svo sannarlega ekki vanta á Sigurrósa tónleikana á Klambratúni. Ji minn hvað þeir voru yndislegir. Sat ásamt stelpunum mínum á teppi og hlustaði á unaðsfagra tónlistina. Algjörlega rétta leiðin til að eyða sunnudagskvöldi eftir vinnuhelgi.

Fór svo í Ratleik með vinnufélögunum á mánudaginn. Það var sko ekki leiðilegt. Gerðum ýmsar þrautir og stóð mitt lið sig sérstaklega vel þótt ég segi sjálf frá. Eftir leikinn fórum við í keilu (stóð mig reyndar ekki vel þar) og svo heim til einnar þar sem við borðuðum og drukkum. Enduðum svo á local pub í Grafarholtinu sem var eiknar áhugavert, áttum hreinlega staðinn kannski af því það var mánudagur.Hér eru myndir frá deginum.

Læt líka eina fylgja með. Fengum flippstig fyrir að taka myndir af okkur með þekktu fólki. Fundum m.a. Jón Gnarr.

Vona að þið hafið það gott um versló og í guðanna bænum farið varlega.


Posted at 03:54 pm by saeja
Comments (5)  

Previous Page Next Page