|
Hæ ég heiti Særún og ég er 6 til 7isti. Fjúff þá hef ég loksins opnað mig um þessa fíkn mína. Ég er semsagt gríðarlegt 6 til 7 fan, semsagt aðdáandi þáttanna og velti oft fyrir mér hvort einhver í heiminum elski þættina eins mikið og ég. Ok elska er kannski aðeins of sterkt til orða tekið en mér líkar þeir vel. Efast um að nokkrar tvær manneskjur nái eins góðu connection og ég og Felix Bergs. Við skiljum hvort annað, eða ég skil hann allavega. Við nefnilega hlæjum saman og grátum saman (úr gleði nota bene) eins ótrúlega og það nú hljómar. Þó maðurinn sé samkynhneigður þá er ég kolfallinn fyrir honum. Ég veit eiginlega ekki hvað það er sem gerir þáttinn svona skemmtilegan. Líklega eru það bara Felix og Guðrún, þau passa nefnilega svo skemmtilega saman, eru eitthvað svo létt en þó alvarleg þegar þess er þörf. Merkilegt hvað þau hlæja mikið og eiginlega ekki annað hægt en að hlæja með þeim. Efnistök þáttarins eru líka góð, allt milli himins og jarðar og pólítíkin verður meira að segja þolanleg. Hugsa samt að það sem er best sé allur maturinn sem er eldaður hjá þeim, alltaf fljótlegur og svo hrikalega girnilegur. Þátturinn í dag var t.d. frábær. Jón Ólafs og Hildur Vala komu í þáttinn og fengu að smakka á því sem hafði verið eldað. Aldrei í þáttunum hef ég séð eins gráðugan mann og Jón, það var stórkostlegt. Hann borðaði á ljóshraða og þegar hann hafði klárað af diskinum náði hann sér í köku sem var á borðinu og byrjaði að borða hana. Greip svo eina sneið í nesti. Yndislegt. Er hætt að lofsama þættina vil ekki að fólk fái algjört ógeð en vitiði til prófið bara að horfa. |
| Sæja October 19, 2006 04:26 PM PDT Get allavega sagt þér það elskuleg Jóhanna mín að ekki tók ég eina einustu þeirra. Þú stóðst þig virkilega vel. | ||
| Johanna October 19, 2006 02:49 PM PDT Púff Sæja mín...this is getting serious! 6 til 7 common! Fallegur bannerinn hjá þer annars, veit ekki betur en ég hafi tekið 66.66 % þessara mynda. | ||
| Helena October 15, 2006 06:03 PM PDT Sæl vinkona! Já veistu, þessir þættir pirruðu mig eitthvað fyrst en nú finnst mér þeir snilld...ótrúlegt hvað þau eru lífsglöð þessar elskur...og Felix lætur mann gráta úr gleði svona næstum jafn mikið og Carson í queer eye...kannski er þetta eitthvað svona hommadæmi...en annars stakk kellan bara af í sveitina! Vona að ég sjái þig fljótlega druslan mín | ||
| Margrét October 14, 2006 09:58 AM PDT Gott að þú ert búin að viðurkenna vandann Sæja mín. Það er ávallt fyrsta skrefið. Ég skal biðja nýja besta vin minn Felix um að hugsa til þín:) | ||
| hulda October 12, 2006 10:06 PM PDT Fyndið að þú skulir minnast á þennan þátt. Ég var nefnilega í fyrsta skipti í gær inni á netinu að kíkja á allt þetta íslenska efni sem liggur 'gratííís' inni á sjónvarpsvefunum. Sá m.a. hálfan 6-7 og 3 já taktu eftir 3 Gilzenegger þætti. Hafði aldrei séð þetta Gilz dæmi þarna og mér fannst þetta bara pínu fyndið. Sérstaklega þegar gaurarnir eru sendir í raflost. ást til þín. Ciao | ||
| Leave a Comment: |