Entry: Hæ fadderí fadderallallallall Thursday, October 19, 2006



Komin tími á smá fréttir af kellu, ekki að það sé neitt markvert í gangi hér á bæ.

Síðustu dagar hafa, ótrúlegt en satt, farið í mikinn lærdóm og er ég alveg búin að fá nóg í bili. Þýðir samt ekki að taka sér of langa pásu þar sem fleiri verkefni bíða mín.

Um síðustu helgi skellti ég mér í sveitina góðu. Hafði helgina til að gera heimapróf og hvar er betra að gera það en heima hjá mömmu gömlu. Svo fór að ég kláraði það að sjálfsögðu með stæl, eða það vona ég að minnsta kosti.

Var í öðru prófi í dag og vona sannarlega að ég hafi gert eitthvað rétt þar, þá verður allavega einu færri próf í desember.

Á morgun er svo að öllum líkindu vinna upp í Reykjadal í eins og eitt stykki sólarhring og ætla svo að skella mér strax að henni lokinni á Broadway og þjóna nokkrum þar. Ekki amalegt að eyða helginni í vinnu, er komin með fráhvarfseinkenni hreinlega.

Var reyndarað sækja um aðra vinnu rétt áðan, á leikskóla hér í bæ og fæ að vita von bráðar hvort mér hlotnist hún. Það væri ekki verra.

Nú eftir akkúrat viku verð ég í háloftunum á leið til Danaveldis í allan unaðinn sem það hefur upp á að bjóða. Yndisleg helgi án efa sem ég mun eyða þar í faðmi fjöllunnar.

Síðast en ekki síst þá er ég búin að losna við helstu hömlurnar sem voru á kjaftinum á mér. Já ég legg ekki meira á ykkur. Ég er farin að geta talað og borðað smá líka. Brosti allan hringinn þegar ég kom frá tannsa í gær, hef þráð það í 4 vikur að fá að borða eitthvað annað en smoothie og súpur og stundin rann upp í gær. Unaðurinn hinn eini.

Nú ætla ég hins vegar að skella mér í hið nýja Ikea og athuga hvernig mér líkar. Er þá búin með 1/10 af þeim heimsóknum sem mér, sem íslending, ber að fara þangað þetta árið.

   2 comments

Alla
October 19, 2006   05:24 PM PDT
 
Þá getur þú kannski fengið nautakjöt og bjór hjá Stefáni! Hlakka til að sjá þig eftir viku!
Rósa
October 19, 2006   05:14 PM PDT
 
Jæja, ég ætla ekki að plana neinn hitting í Århus, ef ég þekki okkur rétt þá rekumst við á hvor aðra ómeðvitað í næstu viku hahaha!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments