Entry: Ég veit ekki! Friday, October 20, 2006



Nei ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það þegar útvarpsmenn spila lög með sjálfum sér. Finnst eitthvað kjánalegt við það. Hugsa allavega að ég myndi ekki gera það.

,,Kæru hlustendur, næsta lag sem ég ætla að spila er nýtt lag með sjálfri mér. Þótt ég segi sjálf frá þá er það fanta gott".....

Ég fékk vinnuna sem ég sótti um í gær. Greinilega skortur á starfsfólki því ekki voru þau lengi að ráða mig. Held reyndar að hæfileikar mínir hafi ekki skemmt fyrir. Ég byrja semsagt að vinna á leikskólanum Sólborg í Öskjuhlíð 3. nóv. Vel mér kannski ekki launahæsta starfið en hef alltaf öfundað Margréti fyrir föndurhæfileika sína og vona að eftir nokkrar vikur í starfi verði ég mega góður föndrari.

Í gær var ég á leiðinni í þessa búð

 

Fór ásamt móður minni og guð minn góður hvað stækkunin er mikil. Vorum í 1 1/2 tíma inni og skoðuðum ekki nándar nærri allt. Maður fer engan skreppitúr í Ikea núna. Ég er allavega voða ánægð með nýju búðina, er reyndar alltaf ánægð með Ikea, elska hana.

   4 comments

Audur
October 23, 2006   11:59 AM PDT
 
Ja... madur er a bloggrunti... og allar vinkonur manns skrifa um IKEA !!! vott is heppening ? thid eigid ykkur klarlega mikid og innihaldsrikt lif elsgurnar !!! en ja... endilega komid med fleiri sogur ur husgagna, busahalda og textilbudum landssins... jeg skemmti mer gedveikt omægod vel vid ad lesa ;)

ast og kossar

ja og hvernig gengur med kjaftinn ?

audur ;*
Gudny
October 22, 2006   09:01 AM PDT
 
P.S ... Eg held ad thu hafir gleymt einni flottri i teir sem standa hjarta tinu naest.. eg helt ad eg aetti hjartad titt :):) hihi love you ! eg legg til ad thu fixir tad og setjir einn gangster inni hopinn ! :):)
Gudny
October 22, 2006   08:59 AM PDT
 
Hallo flotta kona !! til hamingju med vinnuna :):) tu kannski fondrar eitthvad skemmtilegt handa mer :) hi hi ! vertu flott !
tin Gudny
Oddný Eva
October 21, 2006   11:36 PM PDT
 
Sæl systir
Gleymdist að segja mér eitthvað eða eru upplýsingarnar bara svona lengi yfir hafið. Ert þú ekki í skóla?
Hvernig ferðu að því að vinna líka á leikskóla.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments