|
Ég er víst löngu komin heim frá Danmörku sem var sannarlega Dejlig. Hafði það afskaplega gott í faðmi fjölskyldunnar. Við nýttum tímann að sjálfsögðu vel, versluðum, heimsóttum ættingja víðsvegar á Jótlandi, fórum í Legoland, borðuðum. drukkum og fórum í skógarferð svo eitthvað sé nefnt. Veit ekki alveg hvernig LoVÍSU vinkonu líður eftir ferðina en ég hlýt að geta hjúkrað henni um næstu mánaðmót.
Hér erum við mæðgurnar að dreypa á fyrsta bjórnum í Leifstöð, svo virðist sem litli bróðir hafi litið okkur hornauga við það tækifæri.
Við systkinin í vélinni á leiðinni út.
Krakkarnir komnir í Lególand. Eftir að ég kom heim hefur líf mitt alls ekki verið eintóm rólegheit. Byrjaði að vinna á leikskólanum á föstudaginn og líst alveg svakalega vel á. Lítil börn eru algjörir gullmolar. Hef líka fengið nóg að gera á Broadway, var einmitt að vinna í gær og er að vinna bæði fös og lau um næstu helgi. Finnst ekki leiðilegt að vinna þegar ég fæ tækifæri til að sjá þau show sem í gangi eru og það á kaupi. Í gær sá ég Le Sing og á föstudaginn er frumsýningin á Tinu Turner sýningunni, ekki leiðilegt það. Skil samt ekki fólk sem vinnur við að þjóna í stórum veislum hverja einustu helgi, ég er nefnilega alveg búin í líkamanum eftir eitt kvöld, finn allstaðar til. Fyrir þá sem hafa ekki fylgst með þá er komin nóvember og það þýðir aðeins eitt, allt verður brjálað í skólanum. Á að skila allavega 6 verkefnum í lok mánaðarins. Ég mun því ekki eiga mér mikið líf næstu vikurnar |
| johanna November 6, 2006 03:20 PM PST ertu að vinna á Broadway...? | ||
| Alla November 5, 2006 08:09 PM PST Takk fyrir yndislega helgi:D | ||
| Leave a Comment: |