Entry: Ég fæ hroll Thursday, November 09, 2006



Var að horfa á umfjöllun Kastljóssins um ummæli forystumanna Frjálslynda flokksins um innflytjendur. Í framhaldi af því var fólk spurt hvort það myndi kjósa flokk sem hefði það á stefnuskrá sinni að banna innflytjendur og flestir svöruðu já.

Já ég fæ hroll. Mér finnst það til háborinnar skammar að fara að banna útlendinga, það er bara ekki hægt. Ein rökin fyrir því hjá þessu fólki er að útlendingar séu til vandræða. Það er bara ekki rétt. Útlendingar eru ekkert til meiri vandræða en íslendingar. Það sem við þurfum að gera er að taka vel á móti fólkinu, fræða það og veita því þá þjónustu sem þau þurfa til að aðlagast samfélaginu sem best og sem fyrst. Ég er alveg sammála að útlendingar þurfi að læra íslensku og á íslenska ríkið að sjá til þess því ég tel að eitt helsta vandamálið sé að útlendingar hér á landi tala ekki málið og því einangrast þeir. Það er alveg ljóst að ef ég flytti til Spánar t.d. þá þyrfti ég að aðlagast þeim menningarheimi sem er þar við lýði og ég þyrfti að læra málið því annars get ég ætlast til þess að tekið sé á móti mér sem íbúa landsins og krafist þess að hljóta öll réttindi almenns íbúa. Mér finnst líka sjálfsagt að ætlast sé til þess að þeir sem flytji hingað mennti sig eða stundi vinnu svo þau verði ekki upp á ríkið komið.

En að segja að útlendingar séu til eintómra vandræða og geri ekkert gagn, það á bara ekki rétt á sér. Það er bláköld staðreynd að án þeirra væri mikill skortur á vinnuafli hér í láglaunastörfum svo dæmi sé nefnt.

Ég gæti haldið lengi áfram, ég er bara of hneyksluð og reið til að segja eitthvað af nógu miklu viti.

   4 comments

Anna Friðrika
November 11, 2006   04:12 PM PST
 
Þessi umræða er hreinlega hryllileg - annað verður ekki sagt. Það ætti t.d. að spyrja sama fólk og vill "banna innflytjendur" hvort það gæti hugsað sér að búa og vinna erlendis, þó það væri ekki nema í einhvern tíma, viss um að fullt af fólki segði já. Hvernig fyndist þeim að vera bannað það?!
En að sjálfsögðu þarf ríkið að axla sína ábyrgð og verja meiri fjármunum í íslenskukennslu o.þ.h., það er ekki hægt að kenna innflytjendunum um að þau mál séu í lamasessi...
Margrét
November 11, 2006   01:16 PM PST
 
Ég er sammála þér Sæja mín og gæti tjáð mig lengi um þessi mál. En það sem verra er; ég kemst ekki inn á þessa síðu nema svona einu sinni í viku. Tölvan mín á mjög erfitt með að tengjast .blogdrive síðum og sérstaklega þinni...
Johanna
November 11, 2006   10:09 AM PST
 
Er svo sammála þér, sá að vísu ekki þessa umfjöllun en veit hvað þú ert að fara. Sjáðu bara Vetrarborgina eftri Arnald Indriðason, hreinn sannleikur settur í skáldsögu!!

Við ættum að skammast okkar
Alla
November 10, 2006   02:02 PM PST
 
Ég er allveg sammála þér kæra systir! Innflytjendur meiga allveg koma hingað til lands svo fremi sem þeir leggja sig fram við að aðlagst íslensku lífi og læra tungumálið:D

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments