saeja
Flutt
      <description>Þar sem Blogdrive hefur undanfarna daga verið með stæla við mig og þá sem vilja skoða þessa síðu þá hef ég flutt mig um set.
Nýja heimili mitt
Endilega kíktu í heimsókn og ef þú ert með tengil á mig á síðunni þinni endilega breyttu honum.</description>
Ég fæ hroll
      <description>Var að horfa á umfjöllun Kastljóssins um ummæli forystumanna Frjálslynda flokksins um innflytjendur. Í framhaldi af því var fólk spurt hvort það myndi kjósa flokk sem hefði það á stefnuskrá sinni að banna innflytjendur og flestir svöruðu já.
Já ég fæ hroll. Mér finnst það til háborinnar skammar að fara að banna útlendinga, það er bara ekki hægt. Ein rökin fyrir því hjá þessu fólki er að útlendingar séu til vandræða. Það er bara ekki rétt. Útlendingar eru ekkert til meiri vandræða en íslendingar. Það sem við þurfum að gera er að taka vel á móti fólkinu, fræða það og veita því þá þjónustu sem... (more)</description>
Jóli, jólin, jólin koma senn
      <description>Þetta er ekki eðlilegt, ég er komin í glimrandi jólaskap og það í byrjun nóvember. Hefur aldrei gerst svo snemma hjá mér. Kannski blessaðar búðirnar hjálpi eitthvað til enda farnar að selja jóladótið grimmt og meira að segja spila jólalög sem er reyndar bannað á mínu heimili fyrir 1. des. 
Mér hefur aldrei liðið svona. Öll lög sem ég heyri í útvarpinu finnast mér vera jólalög, ég komst í hrikalegt stuð þegar ég pakkaði inn einni gjöf á sunnudag, kveiki sífellt á kertum því þau eru svo jólaleg, er farin að plana hvar ég set jólaskrautið mitt upp, keypti mandarínur um daginn því þær koma með... (more)</description>
Pjúff
      <description>Ég er víst löngu komin heim frá Danmörku sem var sannarlega Dejlig. Hafði það afskaplega gott í faðmi fjölskyldunnar. Við nýttum tímann að sjálfsögðu vel, versluðum, heimsóttum ættingja víðsvegar á Jótlandi, fórum í Legoland, borðuðum. drukkum og fórum í skógarferð svo eitthvað sé nefnt. Veit ekki alveg hvernig LoVÍSU vinkonu líður eftir ferðina en ég hlýt að geta hjúkrað henni um næstu mánaðmót.
Hér erum við mæðgurnar að dreypa á fyrsta bjórnum í Leifstöð, svo virðist sem litli bróðir hafi litið okkur hornauga við það tækifæri.
Við systkinin í vélinni á leiðinni út.
Krakkarnir... (more)</description>
Danmark her kommer jeg!
Ætla að dvelja næstu daga í þessu unaðslandi, Danmörku, nánar til tekið í Árósum. Flýg utan um kaffileytið á morgun og kem til baka á þriðjudaginn.
Efast ekki um að ég eigi eftir að hafa það notalegt enda hefur fjölskyldan við Rydevænget verið sveitt síðustu vikurnar við að undirbúa komu okkar.
Hlakka óseigjanlega mikið til að hitta þau öll.</description>
Ég veit ekki!
      <description>Nei ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það þegar útvarpsmenn spila lög með sjálfum sér. Finnst eitthvað kjánalegt við það. Hugsa allavega að ég myndi ekki gera það.
,,Kæru hlustendur, næsta lag sem ég ætla að spila er nýtt lag með sjálfri mér. Þótt ég segi sjálf frá þá er það fanta gott".....
Ég fékk vinnuna sem ég sótti um í gær. Greinilega skortur á starfsfólki því ekki voru þau lengi að ráða mig. Held reyndar að hæfileikar mínir hafi ekki skemmt fyrir. Ég byrja semsagt að vinna á leikskólanum Sólborg í Öskjuhlíð 3. nóv. Vel mér kannski ekki launahæsta starfið en hef alltaf öfundað... (more)</description>
Hæ fadderí fadderallallallall
      <description>Komin tími á smá fréttir af kellu, ekki að það sé neitt markvert í gangi hér á bæ. 
Síðustu dagar hafa, ótrúlegt en satt, farið í mikinn lærdóm og er ég alveg búin að fá nóg í bili. Þýðir samt ekki að taka sér of langa pásu þar sem fleiri verkefni bíða mín.
Um síðustu helgi skellti ég mér í sveitina góðu. Hafði helgina til að gera heimapróf og hvar er betra að gera það en heima hjá mömmu gömlu. Svo fór að ég kláraði það að sjálfsögðu með stæl, eða það vona ég að minnsta kosti.
Var í öðru prófi í dag og vona sannarlega að ég hafi gert eitthvað rétt þar, þá verður allavega einu færri próf í... (more)</description>
6 til 7
      <description>Hæ ég heiti Særún og ég er 6 til 7isti. 
Fjúff þá hef ég loksins opnað mig um þessa fíkn mína. Ég er semsagt gríðarlegt 6 til 7 fan, semsagt aðdáandi þáttanna og velti oft fyrir mér hvort einhver í heiminum elski þættina eins mikið og ég. Ok elska er kannski aðeins of sterkt til orða tekið en mér líkar þeir vel.
Efast um að nokkrar tvær manneskjur nái eins góðu connection og ég og Felix Bergs. Við skiljum hvort annað, eða ég skil hann allavega. Við nefnilega hlæjum saman og grátum saman (úr gleði nota bene) eins ótrúlega og það nú hljómar. Þó maðurinn sé samkynhneigður þá er ég kolfallinn... (more)</description>
Háir hælar!
Elskulegur nágranni minn hér fyrir ofan hefur verið að gera mig nett brjálaða undanfarna daga. Blessuð manneskjan labbar fram og tilbaka í einhverju maníukasti, að því er virðist, og ekki er hún á sokkaleistunum, ó nei hún er á hælaskóm einhversskonar sem heyrist svona hrikalega í. Ekki nóg með að hún sé að labba um íbúðina heldur virðist hún líka alltaf vera að setjast og standa upp úr einhverjum stól því það heyrist öðru hverju (ansi oft) hljóð eins og stóll sé dregin eftir gólfi. Ég var orðin ansi vön þessum hljóðum í gær en mér var allri lokið þegar ég rumskaði í nótt, kl: 5:40 nánar... (more)</description>
Take That
Sagan segir að þessir myndarlegu menn séu staddir á landinu við tökur á nýju myndbandi. Spurning hvort maður ætti ekki að skella sér að Reykjanesvita og reyna að berja goðin augum eða bara láta sjá sig úti á lífinu um helgina því þar verða þeir víst líka. Veit ekki alveg. Æsingur minn yfir þessum karlmönnum hefur, furðulegt en satt, minnkað verulega með árunum. Þótt ég myndi eflaust kikna í hnjánum ef ég mætti þeim á götu.
Ætli þeir séu Back for good í þetta sinn?</description>